Beint á leiðarkerfi vefsins

15.12.2011

Sveinspróf í húsasmíði haldið í FB

Dagana 14. - 16. desember  eru haldin sveinspróf í húsamíði í Smiðju Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Próftakar eru að þessu sinni 29 talsins og koma þeir víðs vegar  að landinu.  Sveinsprófsstykkið er snúinn stigi og verða próftakar að teikna upp stigann og skila honum fullsmíðuðum á 20 tímum. Ennfremur taka nemendur tveggja tíma skriflegt próf þar sem þeir  svara almennum spurningum úr faginu og sýna fram á kunnáttu sína og þekkingu á faginu.

Aðbúnaður húsasmíðabrautar Fjölbrautaskólans í Breiðholti er mjög góður hentar vel til að halda sveinspróf.

 Á myndinni má sjá Guðrúnu Hrefnu Guðmundsdóttir skólameistara FB og þá Kristján Bjartmars, Braga Finnbogason og Finn Jón Nikulásson sem skipa sveinsprófsnefndina og Stefán Rafnar Jóhannsson fagstjóra húsasmíðabrautar.

26.4.2011

Námskeiði um löggildingu mannvirkjahönnuða frestað

Námskeiði um löggildingu mannvirkjahönnuða sem hefjast átti 29. apríl nk. hefur verið frestað til komandi hausts vegna ónógrar þátttöku.  Endanleg dagsetning hefur ekki verið ákveðin en námskeiðið mun verða auglýst í námsvísi IÐUNNAR og dagblöðum þegar nær dregur.

27.2.2011

Löggilding mannvirkjahönnuða

Námskeiðið  Löggilding mannvirkjahönnuða verður haldið 29. og 30. apríl, 6. - 7. og 13, - 14. maí og lýkur með prófi 28. maí 2011.

25.2.2010

Annað námskeið Völundarverks - Reykjavíkur hafið

Mánudaginn 22. febrúar sl. hófst annað námskeið Völundarverks - Reykjavíkur á Árbæjarsafni.  Að þessu sinni eru þátttakendur 18 sem allir eru húsasmiðir úr hópi atvinnuleitenda í Reykjavík.  Námskeiðið stendur í 4 vikur og er bæði bóklegt og verklegt.  Bóklegi hlutinn fer fram á Árbæjarsafni en verklegi hlutinn fer fram á Laugavegi 4 - 6 og á verkstæði við Stórhöfða.  Að loknu námskeiði munu þátttakendur halda til tímabundinna starfa við viðhaldsverkefni á vegum Reykjavíkurborgar.  

Völundarverk - Reykjavík er átaksverkefni sem unnið er í samstarfi IÐUNNAR fræðsluseturs, Reykjavíkurborgar, Vinnumálastofnunar, Húsafriðunarnefndar og Minjasafns Reykjavíkur.

22.1.2010

Völundarverk auglýsir eftir þátttakendum

KornhusidVölundarverk – Reykjavík auglýsir eftir þátttakendum í næsta verkefni sem hefst 22. febrúar nk.  Þátttakendur munu sækja fjögurra vikna námskeið um viðhald og viðgerðir á gömlum húsum.  Bóklegur hluti þess er haldinn á Árbæjarsafni og verklegur hluti á verkstað.  Þátttakendur starfa síðan tímabundið (3-6 mánuði) við verkefni á vegum Reykjavíkurborgar.   Þátttakendur munu fá greidd taxtalaun vegna tímabundinnar ráðningar skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags þegar vinna hefst að loknu námskeiði.  Umsóknareyðublöð eru hér.

Umsóknum skal skilað  til IÐUNNAR fræðsluseturs, Skúlatúni 2 eigi síðar en 1. febrúar 2010. 

 

18.11.2009

Námskeið í niðurlögn og meðhöndlun steypu.

Steinsteypufélagið, í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur, heldur þriðjudaginn 24.nóvember kl 8:30 til 12:30 námskeið í meðhöndlun og niðurlögn steypu. Leiðbeinendur verða helstu helstu sérfræðingar á þessu sviði á Íslandi.  Námskeiðið er haldið á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og er opið fyrir alla en einkum ætlað þeim sem meðhöndla steypuna á byggingastöðum. Markmiðið er að þáttakendur öðlist skilning á steypu og meðhöndlun hennar og læri réttu vinnubrögðin við hana.

10.11.2009

Völundarverk - Reykjavík, fyrsta námskeiði lokið

Fyrsta námskeiði verkefnisins Völundarverk - Reykjavík lauk sl. föstudag 6. nóvember.  Efnt var til samkomu á Árbæjarsafni í lok dagsins þar sem þátttakendur fengu afhentar viðurkenningar frá IÐUNNI fræðslusetri og bókina Íslensk byggingarfleifð.  Óskar Bergsson formaður stjórnar Völundarkverks, Margrét Leifsdóttir formarður verkefnisstjórnar og fulltrúi þátttakenda, Finnbogi Már Guðmundsson fluttu ávörp. 

12.10.2009

Völundarverk - Reykjavík, fyrsta námskeiðið hafið

Fyrsta námskeið Völundarverks - Reykjavíkur hófst í morgun á Árbæjarsafni.  Námskeiðið sitja 18 þátttakendur, 16 húsasmiðir og 2 arkitektar.  Námskeiðið sem stendur í 4 vikur er bæði bóklegt og verklegt.  Bóklegi hlutinn verður kenndur í Kornhúsinu í Árbæjarsafni en verklegi hlutinn mun að mestu fara fram á hverfismiðstöð Reykjavíkurborgar á Ártúsnshöfða.  Á námskeiðinu verður farið í gegnum sögu húsagerðar fyrri tíma og þátttakendum kennt verklag og handverk við viðgerðir á gömlum timburhúsum.  Verkefnið er átaksverkefni í samstarfi Reykjavíkurborgar, Vinnumálastofnunar, Húsafriðunarnefndar, Árbæjarsafns og Iðunnar fræðsluseturs. 


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd