Beint á leiðarkerfi vefsins

18.11.2009

Námskeið í niðurlögn og meðhöndlun steypu.

Steinsteypufélagið, í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur, heldur þriðjudaginn 24.nóvember kl 8:30 til 12:30 námskeið í meðhöndlun og niðurlögn steypu. Leiðbeinendur verða helstu helstu sérfræðingar á þessu sviði á Íslandi.  Námskeiðið er haldið á Nýsköpunarmiðstöð Íslands og er opið fyrir alla en einkum ætlað þeim sem meðhöndla steypuna á byggingastöðum. Markmiðið er að þáttakendur öðlist skilning á steypu og meðhöndlun hennar og læri réttu vinnubrögðin við hana.

10.11.2009

Völundarverk - Reykjavík, fyrsta námskeiði lokið

Fyrsta námskeiði verkefnisins Völundarverk - Reykjavík lauk sl. föstudag 6. nóvember.  Efnt var til samkomu á Árbæjarsafni í lok dagsins þar sem þátttakendur fengu afhentar viðurkenningar frá IÐUNNI fræðslusetri og bókina Íslensk byggingarfleifð.  Óskar Bergsson formaður stjórnar Völundarkverks, Margrét Leifsdóttir formarður verkefnisstjórnar og fulltrúi þátttakenda, Finnbogi Már Guðmundsson fluttu ávörp. 

12.10.2009

Völundarverk - Reykjavík, fyrsta námskeiðið hafið

Fyrsta námskeið Völundarverks - Reykjavíkur hófst í morgun á Árbæjarsafni.  Námskeiðið sitja 18 þátttakendur, 16 húsasmiðir og 2 arkitektar.  Námskeiðið sem stendur í 4 vikur er bæði bóklegt og verklegt.  Bóklegi hlutinn verður kenndur í Kornhúsinu í Árbæjarsafni en verklegi hlutinn mun að mestu fara fram á hverfismiðstöð Reykjavíkurborgar á Ártúsnshöfða.  Á námskeiðinu verður farið í gegnum sögu húsagerðar fyrri tíma og þátttakendum kennt verklag og handverk við viðgerðir á gömlum timburhúsum.  Verkefnið er átaksverkefni í samstarfi Reykjavíkurborgar, Vinnumálastofnunar, Húsafriðunarnefndar, Árbæjarsafns og Iðunnar fræðsluseturs. 

5.10.2009

Afhending sveinsbréfa á Norðurlandi

Laugardaginn 3. október s.l. stóð Fagfélagið fyrir hófi þar sem nýútskrifaðir sveinar í byggingariðnaði fengu í hendurnar sveinsbréf því til staðfestingar að þeir hafi lokið námi í sinni iðngrein.  Þetta eru nemar sem tóku sveinspróf í desember 2008 og júní 2009.  Hér er um að ræða stærsta hóp sem útskrifaður hefur verið í byggingariðnaði í Eyjafirði á sama tíma. Er þessi stóri hópur dæmi um þann mikla uppgang sem verið hefur í byggingariðnaði á undanförnum árum.Alls útskrifuðust 48 nýsveinar í 4 iðngreinum, 2 húsgagnasmiðir, 31 húsasmiðir,  7 málarar og 8 pípulagningarmenn.  Síðast var sveinspróf í húsgagnasmíði haldið á Akureyri 1989. 

Sveinarnir hafa flestir stundað nám sitt við Verkmennaskólann á Akureyri og fjölbrautarskóla  Sauðárkróks.  Sveinarnir fengu allir útskriftargjöf frá Fagfélaginu og gjafabréf á námskeið hjá Iðunni fræðslusetri

24.9.2009

Völundarverk - umsóknarfrestur framlengdur til 1. október

Laugavegur 6Umsóknarfrestur um þáttöku í Völundarverki - Reykjavíkur, átaksverkefni um endurgerð eldri húsa hefur verið framlengdur til 1. október nk. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun.  Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b  1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði. 

Umsóknareyðublað má nálgast hér

21.9.2009

Afhending sveinsbréfa í bygginga- bíl-, málm- og véltæknigreinum

Föstudaginn 18. september sl. fór fram á Grand Hotel afhending sveinsbréfa.  Að þessu sinni fengu sveinsbréf 84 húsasmíðir, 15 pípulagningamenn, 10 múrarar, 23 málarar, 9 bifvélavirkjar, 7 bifreiða- smiðir 4 bílamálarar og 7 vélvirkjar.  Formenn sveinsprófs- nefnda afhentu sveinsbréfin og formenn meistarafélaga í viðkomandi grein afhentu verðlaun fyrir hæstu einkunnir á sveinsprófi.  Fulltrúar IÐUNNAR afhentu öllum nýsveinum gjafabréf á námskeið að eigin vali.

16.9.2009

Völundarverk - Umsóknarfrestur er til 21. september

Völundarverk-Reykjavík í samvinnu við Vinnumálastofnun, Minjasafn Reykjavíkur og IÐUNA Fræðslusetur auglýsir eftir húsasmiðum og arkitektum í átaksverkefni um endurgerð eldri húsa í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun.  Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b  1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði.  Umsóknarfrestur er til 21. september nk.

Umsóknareyðublað má nálgast hér

14.9.2009

Kynningarfundur um Völundarverk

Þriðjudaginn 15. september kl. kl. 13:30 verður haldinn kynningarfundur í húsakynnum Vinnumálastofnunar í Engjateigi 11 á 2. hæð um Völundarverk - Reykjavík. Atvinnuleitendur í röðum húsasmiða og arkitekta sem áhuga hafa á að kynna sér verkefnið eru eindregið hvattir til að sækja fundinn.  IÐAN fræðslusetur er þátttakandi í verkefninu fyrir hönd Samiðnar, Samtaka Iðnaðarins og Meistarafélags byggingamanna.

 Umsóknir um þátttöku í verkefninu er að finna hér.

8.9.2009

Völundarverk - Reykjavík auglýsir eftir þátttakendum

Völundarverk-Reykjavík, átaksverkefni um handverk og verklag í tengslum við viðhald og endurgerð sögufrægra eldri húsa í Reykjavík.

Átaksverkefnið Völundarverk-Reykjavík (f.h. Reykjavíkurborgar) í samvinnu við Vinnumálastofnun (VMST), Minjasafn Reykjavíkur og IÐUNA Fræðslusetur auglýsir eftir húsasmiðum og arkitektum í átaksverkefni um endurgerð eldri húsa í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun.  Umsóknarfrestur er til 21. september nk.

Umsóknareyðublöð má nálgast hér


Slóðin mín:

Forsíða

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd