12.10.2009
Völundarverk - Reykjavík, fyrsta námskeiðið hafið
Fyrsta námskeið Völundarverks - Reykjavíkur hófst í morgun á Árbæjarsafni. Námskeiðið sitja 18 þátttakendur, 16 húsasmiðir og 2 arkitektar. Námskeiðið sem stendur í 4 vikur er bæði bóklegt og verklegt. Bóklegi hlutinn verður kenndur í Kornhúsinu í Árbæjarsafni en verklegi hlutinn mun að mestu fara fram á hverfismiðstöð Reykjavíkurborgar á Ártúsnshöfða. Á námskeiðinu verður farið í gegnum sögu húsagerðar fyrri tíma og þátttakendum kennt verklag og handverk við viðgerðir á gömlum timburhúsum. Verkefnið er átaksverkefni í samstarfi Reykjavíkurborgar, Vinnumálastofnunar, Húsafriðunarnefndar, Árbæjarsafns og Iðunnar fræðsluseturs.
5.10.2009
Afhending sveinsbréfa á Norðurlandi
Sveinarnir hafa flestir stundað nám sitt við Verkmennaskólann á Akureyri og fjölbrautarskóla Sauðárkróks. Sveinarnir fengu allir útskriftargjöf frá Fagfélaginu og gjafabréf á námskeið hjá Iðunni fræðslusetri
Leit
Mynd









