24.9.2009
Völundarverk - umsóknarfrestur framlengdur til 1. október
Umsóknarfrestur um þáttöku í Völundarverki - Reykjavíkur, átaksverkefni um endurgerð eldri húsa hefur verið framlengdur til 1. október nk. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun. Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b 1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði.
Umsóknareyðublað má nálgast hér
21.9.2009
Afhending sveinsbréfa í bygginga- bíl-, málm- og véltæknigreinum
16.9.2009
Völundarverk - Umsóknarfrestur er til 21. september
Völundarverk-Reykjavík í samvinnu við Vinnumálastofnun, Minjasafn Reykjavíkur og IÐUNA Fræðslusetur auglýsir eftir húsasmiðum og arkitektum í átaksverkefni um endurgerð eldri húsa í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun. Verkefnið sjálft er tvíþætt. Annars vegar undirbúningsnámskeið u.þ.b 1 mánuður sem hefst í október og hins vegar tímabundin störf þátttakenda á byggingarstað/teiknistofu að því loknu í 2-5 mánuði. Umsóknarfrestur er til 21. september nk.
Umsóknareyðublað má nálgast hér
14.9.2009
Kynningarfundur um Völundarverk
Þriðjudaginn 15. september kl. kl. 13:30 verður haldinn kynningarfundur í húsakynnum Vinnumálastofnunar í Engjateigi 11 á 2. hæð um Völundarverk - Reykjavík. Atvinnuleitendur í röðum húsasmiða og arkitekta sem áhuga hafa á að kynna sér verkefnið eru eindregið hvattir til að sækja fundinn. IÐAN fræðslusetur er þátttakandi í verkefninu fyrir hönd Samiðnar, Samtaka Iðnaðarins og Meistarafélags byggingamanna.
Umsóknir um þátttöku í verkefninu er að finna hér.
8.9.2009
Völundarverk - Reykjavík auglýsir eftir þátttakendum
Völundarverk-Reykjavík, átaksverkefni um handverk og verklag í tengslum við viðhald og endurgerð sögufrægra eldri húsa í Reykjavík.
Átaksverkefnið Völundarverk-Reykjavík (f.h. Reykjavíkurborgar) í samvinnu við Vinnumálastofnun (VMST), Minjasafn Reykjavíkur og IÐUNA Fræðslusetur auglýsir eftir húsasmiðum og arkitektum í átaksverkefni um endurgerð eldri húsa í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að þátttakendur séu skráðir atvinnuleitendur hjá Vinnumálastofnun. Umsóknarfrestur er til 21. september nk.
Umsóknareyðublöð má nálgast hér
Leit
Mynd









