22.1.2010
Völundarverk auglýsir eftir þátttakendum
Völundarverk – Reykjavík auglýsir eftir þátttakendum í næsta verkefni sem hefst 22. febrúar nk. Þátttakendur munu sækja fjögurra vikna námskeið um viðhald og viðgerðir á gömlum húsum. Bóklegur hluti þess er haldinn á Árbæjarsafni og verklegur hluti á verkstað. Þátttakendur starfa síðan tímabundið (3-6 mánuði) við verkefni á vegum Reykjavíkurborgar. Þátttakendur munu fá greidd taxtalaun vegna tímabundinnar ráðningar skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags þegar vinna hefst að loknu námskeiði. Umsóknareyðublöð eru hér. Skilyrði fyrir þátttöku eru: · Sveinspróf í húsasmíði · Fullur réttur á bótum og námskeiðsstyrk hjá Vinnumálastofnun. · Áhugi á viðhaldi og viðgerðum á gömlum húsum. · Lögheimili í Reykjavík Nemar sem vantar 6 mánuði eða minna upp á að ljúka vinnustaðanámi geta einnig sótt um þátttöku. Með umsóknum skal fylgja · Afrit af sveinsbréfi eða prófskírteinum. · Náms- og starfsferilsskrá þar sem tilgreind eru þau verkefni sem umsækjandi hefur unnið að við viðhald og viðgerðir gamalla húsa ásamt upplýsingum um fyrri vinnuveitendur sem hafa má samband við Umsóknum skal skilað til IÐUNNAR fræðsluseturs, Skúlatúni 2 eigi síðar en 1. febrúar 2010.
Leit
Mynd









