Raunfærnimat
Raunfærnimat (Bættu um betur).
Margir einstaklingar á vinnumarkaðnum hafa í gegnum áralanga reynslu byggt upp umtalsverða færni í ákveðinni iðngrein, en ekki lokið námi af einhverjum ástæðum. Þessir einstaklingar búa yfir raunfærni sem vert er að skoða og meta. Raunfærni er samanlögð færni sem einstaklingur hefur náð með ýmsum hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi, frístundanámi, skólanámi, félagsstörfum og fjölskyldulífi.
Bættu um betur er tilraunaverkefni þar sem gengið er út frá að eðlilegt sé að meta færni sem til staðar er óháð því hvernig hennar hefur verið aflað. Verkefnið felst í því að búa til leiðir til að meta færni þátttakenda, stöðu þeirra og gefa þeim kost á að ljúka námi sínu. Mat á raunfærni byggir á þeirri hugmynd að nám fari ekki eingöngu fram innan formlegaskólakerfisins heldur í alls konar aðstæðum en að allt nám sé verðmætt og að það sé skjalfest óháð því hvar þess hefur verið aflað.
Tilgangur raunfærnimats er að draga fram og meta fjölbreytilega raunfærni sem einstaklingurinn býr yfir. Raunfærnimatsferlið er í fimm liðum. Í fyrsta lið er upplýsingum miðlað, skimunarviðtal á sér stað hjá náms- og starfsráðgjafa og þátttakendur afla gagna um náms- og starfsferil sinn. Að því loknu hefst skráning í færnimöppu og þar er skjalfest almenn færni og sjálfsmat þátttakenda á faggreinum námsins. Greiningarviðtal á sér stað þegar skráningu í færnimöppu er lokið og þar hittast fagaðilar og þátttakandinn en með honum til stuðnings er náms- og starfsráðgjafi. Eftir greiningarviðtal metur matsaðili hvort þörf er fyrir nánari staðfestingu á færni t.d. með verklegum æfingum í ákvðenum viðfangsefnum. Að því loknu liggur fyrir hvort einstaklingurinn uppfylli þau skilyrði sem sett eru til viðmiðunar á loknum áfanga. Ef viðmiðin eru uppfyllt þá er viðurkenning vottuð af samstarfsskóla verkefnisins.
Í flest öllum tilvikum stendur eitthvað nám eftir og þá er unnið að námsáætlun fyrir þátttakandann til þess að hann getið lokið því námi sem eftir er og farið í sveinspróf. Í kjölfar raunfærnimats getur skipt sköpum fyrir þátttakendur að boðið sé upp á fjölbreyttar námsleiðir til að ljúka námi í greininni sem mat á raunfærni fór fram í og er það í höndum framhaldsskólanna eða hjá fullorðinsfræðsluaðilum. Mat á raunfærni er mikil hvatning til náms fyrir einstaklinga á vinnumarkaðanum og gefur þeim tækifæri á að ljúka námi á sínum forsendum.
Leit
Mynd









