Beint á leiðarkerfi vefsins

Sveinspróf

Til að sjá um framkvæmd sveinsprófa um allt land skipar menntamálaráðherra sveinsprófsnefndir. Hér að neðan má lesa um skipan sveinsprófsnefnda og helstu hlutverk sem og hvernig má nálgast upplýsingar um tímasetningar sveinsprófa þeirra iðngreina sem eru innan bygginga- og mannvirkjasviðs.

Á upplýsingarsíðu IÐUNNAR, UNS (umsýsla námssamninga og sveinsprófa) er hægt að fá nánari upplýsingar um sveinspróf, hæfniskröfur og námsskrár. Þó ber að taka fram að síðan er í vinnslu.

 Skipan sveinsprófsnefndar
 Í sveinsprófsnefnd skulu vera þrír menn og jafnmargir til vara og skulu þeir skipaðir af menntamálaráðherra til fjögurra ára í senn. Tveir nefndarmenn skulu skipaðir að fengnum tillögum viðkomandi starfsgreinaráðs og skulu að jafnaði vera bæði meistari og sveinn. Einn skal skipaður án tilnefningar og skal hann hafa kennslureynslu í viðkomandi iðngrein ef þess er nokkur kostur. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Nefndin kýs sér formann.  

 Hlutverk sveinsprófsnefnda
 Menntamálaráðherra skipar sveinsprófsnefndir í löggiltum iðngreinum fyrir allt landið til þess að sjá um framkvæmd sveinsprófa, þar með talið mat á úrlausnum. Menntamálaráðherra setur sveinsprófsnefndum starfsreglur að fengnum tillögum starfsgreinaráða þar sem m.a. er kveðið á um samningu og framkvæmd prófa, aðstöðu á prófstað, mat á úrlausnum, einkunnagjöf og birtingu niðurstaðna, þ.m.t. lágmarksárangur á sveinsprófi, varðveislu prófúrlausna o.s.frv. IÐAN er ábyrgðaraðili á framkvæmd og skipulag sveinsprófa gagnvart menntamálaráðuneytinu og starfsgreinaráðum. 

Verkefni sveinsprófsnefnda eru m.a. eftirfarandi: -        

  • Halda fundargerðabók, tilgreina fjölda funda, greina frá dagskrá fundanna og skrá helstu niðurstöður þeirra.-     
  • Setja fram starfsáætlun og tímasetja sveinsprófin.- 
  • Lýsa uppbyggingu og gerð sveinsprófa í löggiltum iðngreinum, lýsa prófþáttum og vægi einstakra prófþátta prófsins. -        
  • Semja prófspurningar í sveinsprófum og greina með nákvæmum hætti frá matsreglum og námsmati í viðkomandi prófi. Prófspurningar eru varðveittar í prófabanka IÐUNNAR.-        
  • Setja skýr viðmið um lágmarksárangur á sveinsprófi og í einstaka prófþáttum.  -        
  • Leggja mat efniskostnað sveinsprófs á grundvelli prófþáttalýsingar og umfangi prófsins, fjölda próftaka o.s.frv.-        
  • Skipuleggja nánar alla framkvæmd sveinsprófs, s.s. tímasetning á skriflegum og verklegum prófum, tilgreina kröfur til próftökustaða, gera grein fyrir próftökustöðum, skipuleggja yfirsetur í sveinsprófum og fl. -        
  • Skipuleggja aðkoma allra sem hlut eiga að máli við framkvæmd sveinsprófanna.-        
  • Meta úrlausnir sveinsprófstaka og gefa einkunn í samræmi við matsreglur.-        
  • Ber ábyrgð á prófsýningu í lok prófs og að upplýsa sveinsprófstaka um niðurstöður sveinsprófsins og einstaka þátta þess.-        
  • Bera ábyrgð á varðveislu sveinsprófsverkefna í eitt ár með þeim hætti sem verður við komið, þ.e.a.s varðveita ber skriflegar úrlausnir, teikningar, verkefnabækur nema, ásamt tilheyrandi matsblöðum og umsögnum. Sveinsprófsverkefni þar sem því verður við komið, myndir af verkefnum eða með öðrum hætti.-        
  • Taka saman skýrslu um framkvæmd sveinsprófa og skila til starfsmanns IÐUNNAR og menntamálaráðuneytisins.   

 Framkvæmd sveinsprófa

 Sveinspróf eru haldin tvisvar á ári þar sem því verður við komið, alla jafna eru prófin haldin á tímabilinu maí-júní og desember-janúar. Sveinsprófsnefnd í samráði við starfsmenn IÐUNNAR, skólastjórnendur í viðkomandi skólum eða forsvarsmenn próftökustaðar ákveða prófdaga og próftökustað í sveinsprófum, bæði fyrir skrifleg og verkleg próf.

Slóðin mín:

Sveinspróf

Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd