Starfsgreinaráð bygginga- og mannvirkjagreina
Starfsgreinaráð: Hlutverk og tilgangur Starfsgreinaráðs skv. 29. gr. Laga um Framhaldsskóla.Starfsgreinaráð skilgreinir þarfir starfsgreina fyrir kunnáttu og hæfni starfsmanna og setur fram markmið starfsnáms.
Starfsgreinaráð gerir tillögur um uppbyggingu starfsnáms og námskrá í sérgreinum viðkomandi starfsnáms, svo og um tilhögun námsmats, þar með talin sveinspróf og eftirlit með gæðum kennslu og námsefnis. Það gerir einnig tillögur að skiptingu náms í skóla og á vinnustað, svo og reglum um vinnustaðanám, viðurkenningu á vinnustöðum til að taka nema í starfsþjálfun eða á námssamning og aðstöðu, búnað og kennarakost skóla sem annast starfsnám.
Starfsgreinaráð skal hafa frumkvæði að tillögugerð um breytta skipan náms og vera stjórnvöldum til ráðuneytis í málum er varða menntun í starfsgreinum er undir ráðið heyra.
Að fengnum tillögum starfsgreinaráðs gefur menntamálaráðherra út námskrá í sérgreinum starfsnáms sem hluta af aðalnámskrá framhaldsskóla og reglur um framkvæmd starfsnáms í einstökum starfsgreinum.
| Starfsgreinaráð |
| Aðalmenn: |
| Eyjólfur Bjarnason |
| Friðrik Ágúst Ólafsson |
| Guðmundur Ómar Guðmundsson |
| Ingi Bogi Bogason |
| Jón Ingi Ingimundarson |
| Ólafur S. Magnússon |
| Már Guðnason |
| Stefán Jónsson |
| Þórarinn Eggertsson |
| Varamenn: |
| Finnbjörn A. Hermannsson |
| Heimir Kristinsson |
| Helgi Pálsson |
| Sigurgeir Sveinsson |
| Sveinbjörn Sveinbjörnsson |
| Sveinn Pálsson |
| Þorkell Gunnarsson |
| Þorsteinn Viðar Sigurðsson |
Leit
Mynd









