Beint á leiðarkerfi vefsins

Sviðsstjórn bygginga- og mannvirkjasviðs

Sviðsstjórn Bygginga- og mannvirkjasviðs er skipuð til tveggja ára í senn og er hún skipuð á eftirafandi hátt:

Sviðsstjórn:

Aðalmenn: Aðildarfélag:
Árni Ingi Stefánsson Samtök iðnaðarins - formaður
Ármann Ægir Magnússon Samiðn
Baldur Þór Baldvinsson Meistarasamband byggingamanna
Finnbjörn Hermannsson Samiðn
Friðrik Ólafsson Samtök iðnaðarins
Guðmundur Ingi Guðmundsson Samiðn
Helgi Pálsson Samiðn
Þorsteinn Viðar Sigurðsson Samtök iðnaðarins
   
Varamenn:  
Ágúst Friðgeirsson Meistarasamband byggingamanna
Guðlaugur Karlsson Samiðn
Heimir Kristinsson Samiðn
Stefán Jónsson Samtök iðnaðarins
Þorsteinn Kristmundsson Samiðn

Sviðsstjórn bygginga- og mannvirkjasviðs er er rödd viðkomandi iðngreina innan IÐUNNAR og gætir hagsmuna þeirra hvað varðar fræðsluþarfir, þjónustu og gæði. Sviðsstjórn starfar samkvæmt samstarfssamningi hluthafa og er skipað í hana af hluthöfum IÐUNNAR. 

Sviðstjórn kemur að, með starfsmönnum sviðsins og framkvæmdarstjóra, stefnumótun til lengri og skemri tíma varðandi námsframboð og útfærslu námsins, hvort heldur sem er hefðbundin námskeið eða sérhönnuð námskeið fyrir fyrirtæki. Þetta á að tryggja að framboð og framsetning á námi hjá bygginga- og mannvirkjasviði endurspegli þarfir og metnað viðkomandi iðngreina.

Helstu verkefni sviðsstjórnar:

 
  1. Samráð við stjórn og framkvæmdastjóra vegna stærri mála, m.a. vegna ráðningu sviðsstjóra, áætlana, stefnu og fjárfestinga.
  2. Staðfestir uppgjör sviðsins.
  3. Umsagnir um fagtengd mál.
  4. Þátttaka í greiningu á fræðsluþörfum viðkomandi iðngreina.
  5. Afgreiðir tillögur sviðsstjóra um fræðslustefnu sviðsins í fagtengdum þáttum.
  6. Afgreiðir tillögur sviðsstjóra um stefnu vegna faghluta náms í iðngreinum sviðsins.
  7. Afgreiðir tillögur sviðsstjóra um stefnu vegna faghluta meistaranáms í greinum sviðsins.
  8. Hefur ásamt sviðsstjóra frumkvæði að tillögum til stjórnar og framkvæmdastjóra um þróun og framleiðslu fagnámskeiða fyrir viðkomandi greinar.
  9. Gerir ásamt sviðsstjóra tillögur til stjórnar og framkvæmdastjóra um keyrslu fagnámskeiða.
  10. Tekur þátt í eða aðstoðar eftir atvikum við vinnslu námskráa í iðnnámi og faghluta meistaranáms í viðkomandi iðngreinum.
  11. Gerir ásamt sviðsstjóra tillögur til stjórnar og framkvæmdastjóra að markaðssetningu á fagtengdum þjónustuþáttum og námskeiðum.
  12. Hefur yfirumsjón með framkvæmd sveinsprófa í viðkomandi iðngreinum.
  13. Hefur yfirumsjón með útgáfu faglegra hæfnisvottorða.
  14. Tekur eftir atvikum, og í samráði við stjórn, framkvæmdastjóra, þátt í erlendu samstarfi.
  

 

 

 


Heim

Forsíða IÐUNNARIDAN.IS

Stjórnborð

Minnka letur Upphaflegt letur Stækka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd